Togleikur Dead or Alive
Togleikur Dead or Alive
Ath. námskeiðið fylgir frítt með þegar keypt eru tvö eins togdót (sem þarf fyrir leikinn).
Þú þarft:
- 2x ALVEG eins dót sem hægt er að togast á við hundinn
- Gott að hafa ekki sleipt gólf
- Tölvu/síma og internet
Leikurinn byggir upp traust og er einstaklega skemmtilegur leikur tveggja vina á sama tíma og hundurinn er að læra.
Markmiðið með leiknum er að búa til verðlaunamerki sem að þú getur síðan notað til að verðlauna hundinn úr fjarlægð og kallað hundinn til þín úr erfiðum aðstæðum.
Námskeiðinu er skipt upp í lítil skref á eins vikna fresti í 5 vikur
Almennt
Hundakúnst áskilur sér rétt til að hætta við námskeið, pantanir eða hverskonar sölu, vegna t.d. rangra verðupplýsinga, ónægrar þáttöku á námskeiðum eða annara ástæðna. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
5 dögum eftir að krafa kemur í heimabanka og/eða eftir eindaga fer hún sjálfkrafa í innheimtu hjá Inkasso hafi viðskiptavinur ekki haft samband og samið um annað.
Vöruverð og sendingarkostnaður
Öll verð í vefverslun eru endanleg verð nema annað sé sérstaklega tekið fram, og innihalda þar af leiðandi 24% vsk þar sem við á og önnur vörugjöld.
Afskráning
Láti viðskiptavinur vita með þriggja vikna fyrirvara (námskeið) eða 24 klst fyrirvara (einkatími) að viðkomandi vill hætta við er veitt full endurgreiðsla. Skrái viðskiptavinur sig á námskeið með skemmri fyrirvara er ekki veitt endurgreiðsla.
Undantekningar á þessari reglu koma fram á kynningarsíðu námskeiðsins, t.d. ef að um sérnámskeið er að ræða.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum seldar til þriðja aðila.
Um allar persónuupplýsingar verður farið samkvæmt lögum nr. 90/2018 um persónuvernd.
Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur.