Örnámskeið hvernig á að kenna á klikker og klassískt skilyrða hann

Course

Örnámskeið - Klikker þjálfun

Stutt og skilvirkt netnámskeið sem kennir þér grunnatriði klikkerþjálfunar. Lærðu að nota nákvæmni og rétta tímasetningu til að kenna hundinum nýjar hegðanir hraðar og skemmtilegur.
Örnámskeið
Netnámskeið
Togleikur með hundi

Course

Örnámskeið - Dead Or Alive

Stutt netnámskeið sem kennir þér að nota togleik sem þjálfunartæki. Lærðu að gera leikinn öruggan og skemmtilegan – á sömu stundu og þú styrkir tengsl við hundinn.
Örnámskeið
Netnámskeið
netnámskeið um jafnvægisæfingar fyrir hunda, innifalið með jafnvægispúðum.

Course

Örnámskeið - Jafnvægispúðar námskeið

Stutt netnámskeið sem sjálfur með jafnvægispúðum til að styrkja kjarnavjmöðva hundsins og þræla jákvægi. Lærðu á eigin tíma og hraða með skref-fyrir-skref myndböndum.
Örnámskeið
Netnámskeið
Örnámskeið hvernig á að venja hundinn við hin ýmsu áreiti. Dæmið hér er að raka undir loppum

Course

Örnámskeið - raka hár undir loppum

Stutt myndbandsröð sem kennir þér hvernig á að gera rakvina og aðra “hræðilega” hluti að jákvæðri upplifun fyrir hundinn. Aðferðin er ýirflaerinða á marg ar aðstæður.
Örnámskeið
Netnámskeið

Af hverju Hundaeigendur Treysta okkur

★★★★★
Ég hef farið á hvolpa og hundanámskeið áður svo ég get sagt með fullvissu að námskeiðin hjá Hundakúnst eru eitthvað annað. Nú hafa augu mín galopnast og ég er orðin svo ástríðufull gagnvart því að kenna og þjálfa hundana mína.
Gestný Rós
Sjá allar umsagnir

Algengar Spurningar

Hvaða námskeið býður Hundakúnst upp á?

Hjá Hundakúnst bjóðum við upp á fjölbreytt námskeið sem styðja við þjálfun, samskipti og sterkari tengsl milli hunds og eiganda. Námskeiðin eru ólík að áherslum og markmiðum, svo þú getur valið það sem hentar best út frá aldri hundsins, reynslu og því sem þið viljið vinna með saman.

Hvernig veit ég hvaða námskeið hentar okkur best?

Rétt námskeið fer eftir því hvar þið eruð stödd í ykkar ferðalagi. Sum námskeið henta vel fyrir þau sem eru að stíga sín fyrstu skref, á meðan önnur henta þeim sem vilja dýpka þjálfunina eða vinna með ákveðna þætti. Á hverri námskeiðssíðu finnur þú nánari upplýsingar sem hjálpa þér að velja það námskeið sem hentar ykkur best.

Þú getur líka haft samband við okkur og við aðstoðum þig með ánægju.

Fyrir hverja eru námskeiðin hjá Hundakúnst?

Námskeiðin okkar eru fyrir hundaeigendur sem vilja byggja upp jákvæð samskipti, betri skilning og meira öryggi í daglegu lífi með hundinum sínum. Hvort sem þú ert með ungan hund, fullorðinn hund eða vilt styrkja ákveðna færni, þá er markmiðið alltaf að styðja við ykkur bæði sem teymi.

Hvernig er nálgunin á námskeiðunum?

Nálgunin okkar byggir á jákvæðri styrkingu, virðingu og skilningi. Við horfum ekki bara á hegðun hundsins, heldur líka á líðan hans, þarfir og sambandið milli hunds og manns. Markmiðið er að hjálpa þér að þjálfa með meiri skýrleika, öryggi og trausti.

Hvað fæ ég út úr því að fara á námskeið?

Á námskeiði færðu betri skilning á hundinum þínum, hvernig hann lærir og hvernig þú getur unnið með honum á jákvæðan og uppbyggilegan hátt. Hundurinn fær tækifæri til að læra í öruggu umhverfi og styrkja samstarfið við þig. Verkfærin sem þú færð eru hugsuð til að nýtast áfram í daglegu lífi, líka eftir að námskeiði lýkur.

Þarf hundurinn minn að kunna eitthvað fyrirfram?

Það fer eftir námskeiðinu. Sum námskeið eru opin þeim sem eru að byrja, á meðan önnur byggja á ákveðnum grunni eða fyrri reynslu. Þess vegna mælum við alltaf með að lesa lýsinguna fyrir hvert námskeið vel, svo þú getir valið það sem hentar ykkur best.
Þú getur líka haft samband við okkur og við aðstoðum þig með ánægju.