Lítið, mjúkt og fljótborðað svo æfingin haldi áfram, og nógu spennandi til að hundurinn leggi sig fram. Þess vegna eru litlir þurrkaðir kjöt og fiskbitar frá Riverwood og Fish4Dogs vinsælasta þjálfunarnammið okkar.
Skiptir máli hvað ég er fljótur að gefa nammið?
Miklu meira en flestir halda. Í rannsókn lærðu 60% hunda nýja æfingu þegar verðlaunin komu strax en aðeins 25% þegar þau komu einni sekúndu of seint. Hafðu nammið tilbúið í hendi eða notaðu verðlaunamerki sem brúar bilið.
Verður hundurinn feitur af þjálfunarnammi?
Ekki ef þú telur það með. Minnkaðu matarskammtinn á móti á æfingadögum og notaðu pínulitla bita, það er endurtekningin sem þjálfar, ekki stærð bitans.
Hvaða þjálfunarnammi hentar viðkvæmum maga?
Einfalt nammi með fáum hráefnum, til dæmis hreint þurrkað roð eða bitar úr einni kjöttegund. Ef hundurinn er með staðfest óþol veldu nammi úr sömu próteintegund og fóðrið hans eða kjöt sem hann er ekki með ofnæmi fyrir.
Hundurinn minn er matvandur í æfingum, hvað virkar?
Hækkaðu verðmætin. Þurrkað kjöt eða fiskur með sterkri lykt vekur oftast áhugann, og geymdu besta nammið eingöngu fyrir æfingar svo það haldist spennandi.
Confirm your age
Are you 18 years old or older?
Come back when you're older
Sorry, the content of this store can't be seen by a younger audience. Come back when you're older.