Sýninganámskeið

24.990 kr

Námskeið fyrir þá sem vilja hefja sýningarferil eða þróa sig í hundasýningum. Farið er yfir uppstillingu, sýningarstöðu og húmorlagæðarútrínur sem gjöra ykkur tilbúin fyrir sýningargólfið.

Hentar fyrir

  • Þá sem eru að byrja að sýna hunda
  • Eigendur sem eru forvitinn um sýningarheiminn
  • Þá sem vilja undirbúa sig og hundinn fyrir sýningar
  • Þau sem vilja læra rétta uppstillingu og sýningarstöðu
  • Þá sem vilja auka sjálfsöryggi á sýningargólfinu
Sýninganámskeið

Hvað þú og hundurinn þinn lærir

Hvernig hundarsýningar virka

Ganga í hring og stigagjöf

Undirbúningur hunds fyrir sýningu

Sjálfstraust í keppnisumhverfi

Hvað er innifalið

Lítill hópur (6 hundar)

Reyndur sýningakennari (Stefanía, ~25 ára reynsla)

Verklegar æfingar

Ertu að byrja að sýna eða ert forvitin/forvitinn um sýningarheiminn?

Hvort sem þú ert að velta því fyrir þér hvernig sýningar virka eða ert að undirbúa þig og hundinn þinn fyrir þína fyrstu sýningu, þá er þetta námskeiðið sem hjálpar þér að komast af stað með sjálfstraust og gleði.
Námskeiðið hentar bæði hvolpum og fullorðnum hundum – því aldrei er of snemmt (eða of seint!) að læra að skína í hringnum.

Kennarinn á námskeiðinu er Stefanía Björgvinsdóttir en hún hefur sýnt og þjálfað sýningahunda í um 25 ár með mjög góðum árangri.

Við vinnum í smáum hópi, aðeins 6 hundum í senn, sem tryggir persónulega leiðsögn og rólegt andrúmsloft þar sem hver hundur og eigandi fá tíma og rými til að vaxa saman sem teymi.

Á námskeiðinu lærir þú meðal annars:

  • Hvernig sýningar fara fram og hvert markmið þeirra er
  • Grunnaðgerðir og sýningarrútínur
  • Rétta uppstillingu og sýningarstöðu
  • Hvernig dómari skoðar hundinn
  • Líkamsbeitingu og tjáningu sýnanda
  • Hlaupa - og göngustíl í hringnum
  • Allt það helsta sem við kemur sýningum

10% afsláttur af öllum vörum

Þátttakendur á námskeiðum fá 10% afslátt af öllu hundafóðri, vörum og þjálfunarbúnaði. Afslátturinn gildir áfram að námskeiði loknu svo þú getur nálgast allt sem hundurinn þinn þarf á einum stað.

10% afsláttur af öllum vörum

Önnur námskeið

Grunnnámskeið

Grunnnámskeið

Grunnnámskeið fyrir hvolpa og hunda frá 12 vikna aldri þar sem þú lærir að byggja upp traust, skýr samskipti og góðan grunn fyrir lífið saman. Námskeiðið sameinar verklega kennslu, netnám og persónulega leiðsögn í litlum hópi.
5 Vikur
Reykjavík
Helgarnámskeið-Grunnnámskeið

Helgarnámskeið-Grunnnámskeið

Hnitmiðað námskeið fyrir þá sem vilja ná góðum grunni á einni helgi. Við leggjum áherslu á samskipti, traust og hagnýta hlýðni sem virkar í daglegu lífi.
2 Dagar ( 6 klst)
Landsbyggðin (Breytilegt)
Einkatímar fyrir alla eigendur og hunda. Hvort sem um er að ræða vandamál eða að búa til hinn fullkomna vin

Einkatímar

Einkatímar þar sem þú og hundurinn fáið alla athyglina og persónulega leiðsögn. Við hjálpum ykkur að leysa vandamál, þróa æfingar og styrkja sambandið á ykkar eigin forsendum.
1 klst
Reykjavík