Blautmatur

Recently Viewed Products

Algengar Spurningar

Er blautmatur jafn góður og þurrfóður?

Já, góður blautmatur er heilfóður eins og þurrfóður. Hann inniheldur meira vatn sem hentar hundum sem drekka lítið, og lyktin og áferðin vekja oft matarlyst hjá matvöndum og eldri hundum.

Má blanda blautmat við þurrfóður?

Já, margir hundar fá blandaða skál og það er fín leið til að gera þurrfóðrið meira spennandi. Mundu bara að telja hvort tveggja inn í dagskammtinn svo heildin verði rétt.

Hvað er Mono Proteine frá Riverwood?

Blautmatur með aðeins einni próteintegund, 70% hreinu kjöti og engum kolvetnum. Einfaldara verður innihald ekki, og þess vegna er Mono línan sterkur kostur fyrir hunda með ofnæmi eða óþol.

Hvað einkennir blautmatinn frá Luger's?

Alvöru máltíðir með kjöti og grænmeti sem sést með berum augum, kálfakjöt með gulrótum eða villisvín með graskeri. Sama human grade hugsun og í loftþurrkaða fóðrinu þeirra.

Hvernig geymi ég opnaða dós eða poka?

Í kæli með loki og notaðu innan fárra daga, eins og annan ferskan mat.