Hollensk gæðahönnun fyrir hundinn og heimilið

Hundabæli

Lex&Max er hollenskt hönnunarmerki sem framleiðir vönduð hundabæli og hundadýnur með orthopedic memory foam fyllingu. Bælin eru með stömum botni og vel fylltum köntum, áklæðin má þvo og hönnunin passar fallega inn á heimilið. Við eigum vinsælustu litina og stærðirnar á lager og sérpöntum aðra liti úr línunni fyrir þig.

🦴
Orthopedic fylling
Memory foam sem lagar sig að líkama hundsins og léttir álag á liði. Sérstaklega gott fyrir stóra hunda og eldri hunda.
🧺
Auðvelt að þrífa
Áklæðin má taka af og þvo í þvottavél á 30°C. Alaska bælin úr Eco leather eru strokin af með rökum klút.
🎨
Allir litir í sérpöntun
Litaprufubók í versluninni. Við sérpöntum þann lit og þá stærð sem þú vilt úr allri Lex&Max línunni.

Af hverju skiptir gott bæli máli?

Hundar hvíla sig stóran hluta sólarhringsins og góður hvíldarstaður skiptir miklu máli fyrir líðan þeirra. Úthvíldur hundur á auðveldara með að læra og halda ró sinni, og orthopedic fylling léttir álag á liði í hvíldinni.

🦴 Styður við bein og liði
💤 Betri hvíld, rólegri hundur
🧼 Áklæði sem má taka af og þvo
🏠 Hönnun sem passar inn á heimilið

Hvernig velur þú rétt hundabæli?

Góð regla er að hundurinn geti teygt úr sér í bælinu án þess að þrengja að sér. Athugaðu að ytra málið segir ekki alla söguna, því upphækkuðu kantarnir taka um það bil 30 cm af bæði lengd og breidd. 70x55 cm bæli gefur til dæmis um 40x30 cm legusvæði, 100x80 cm gefur um 70x50 cm og 120x85 cm gefur um 90x55 cm. Mældu hundinn þar sem hann liggur teygður úr sér og bættu 15 til 20 cm við, sú tala er legusvæðið sem þú þarft. Ef þú ert í vafa milli tveggja stærða er yfirleitt betra að velja þá stærri. Sumir kalla þetta hundarúm eða einfaldlega bæli fyrir hunda, það er sami hluturinn.

Þrýstijöfnun (orthopedic) sem styður við bein og liði

Öll bælin eru með þrýstijöfnun (orthopedic), memory foam fyllingu sem lagar sig að líkama hundsins og dreifir þunganum jafnt. Vel fylltir kantar gefa stuðning þegar hundurinn hvílir hausinn á þeim og stamur botn heldur bælinu á sínum stað. Hundar hvíla sig stóran hluta sólarhringsins og úthvíldur hundur á auðveldara með að læra og halda ró sinni. Gott bæli er þægindi fyrir hundinn, ekki lækning. Ef hundurinn er stirður eða á erfitt með að leggjast og standa upp er það erindi til dýralæknis.

Efni og þrif

Áklæðin á Paris, Chicago og New York bælunum má taka af og þvo í þvottavél á 30°C. Alaska bælin eru úr Eco leather sem er einfaldlega strokið af með rökum klút. Tivoli hundadýnurnar eru með áklæði úr 100% bómull sem má einnig taka af og þvo. Fyllingin sjálf fer ekki í þvottavél, hana er best að viðra.

Fleiri litir og stærðir í sérpöntun

Við eigum vinsælustu litina og stærðirnar á lager en Lex&Max línan er mun stærri. Í versluninni okkar er litaprufubók þar sem þú getur skoðað öll efni og alla liti merkisins og við sérpöntum fyrir þig. Lex&Max er hollenskt hönnunarmerki og bælin passa fallega inn á heimilið.

Kíktu við í verslunina okkar á Malarhöfða 2 og leyfðu hundinum að prófa, eða pantaðu á netinu og fáðu bælið sent heim.

Algengar spurningar

Hvaða stærð af hundabæli á ég að velja?+

Mældu hundinn þar sem hann liggur teygður úr sér, frá trýni aftur að skotti, og bættu 15 til 20 cm við. Passaðu að bera þá tölu saman við legusvæðið en ekki ytra málið, því kantarnir taka um 30 cm af báðum málum. 70x55 cm bæli gefur um 40x30 cm legusvæði, 100x80 cm gefur um 70x50 cm og 120x85 cm gefur um 90x55 cm. Ef þú ert á milli stærða skaltu velja þá stærri.

Má þvo hundabælið í þvottavél?+

Áklæðin á Paris, Chicago og New York bælunum má taka af og þvo á 30°C. Alaska er úr Eco leather og er strokið af með rökum klút. Fyllingin sjálf fer ekki í þvottavél, hana er best að viðra.

Hvað er orthopedic fylling?+

Memory foam sem lagar sig að líkama hundsins og dreifir þunganum jafnt. Það léttir álag á liði og hentar öllum hundum, sérstaklega stórum hundum og eldri hundum.

Get ég fengið aðra liti eða stærðir en eru á síðunni?+

Já. Í versluninni okkar er litaprufubók frá Lex&Max og við sérpöntum þann lit og þá stærð sem þú vilt úr allri línunni.

Hver er munurinn á hundabæli og hundadýnu?+

Hundabæli er með upphækkuðum köntum sem margir hundar nota sem kodda. Hundadýna eins og Tivoli er flöt og einföld og hentar vel sem aukastaður á heimilinu, í bílinn eða ofan í búr.

Er frí heimsending?+

Já, frí afhending með Dropp þegar pantað er fyrir 15.000 kr. eða meira.