Já, og það er ekki tilviljun. Langflest nammið okkar er náttúrulegt og þurrkað, oft aðeins eitt hráefni eins og þurrkað roð, eyru eða hálsar, án viðbættra litar og bragðefna. Við veljum nammið frá sömu framleiðendum og fóðrið okkar, Riverwood, Fish4Dogs og Luger's, og gerum sömu kröfur til þess.