Fyrir hunda sem toga er beislið betri kosturinn. Rannsókn sýndi að tog í hálsól hækkar þrýsting í augum hundsins en beisli gerir það ekki. Best er samt að kenna hundinum að toga ekki og nota þá ól, þá er engin fyrirstaða.
Hvernig ven ég hundinn af því að toga?
Verðlaunaðu slakan taum í stað þess að rykkja. Togið má aldrei borga sig, um leið og taumurinn strekkist stoppar ferðin. Á Grunnnámskeiðinu okkar er taumganga eitt af aðalatriðunum.
Hvað þarf fyrir íslenskt myrkur og veður?
Endurskin og ljós á bæði hund og eiganda yfir veturinn. Fyrir snögghærða hunda getur flík átt rétt á sér í kulda og rigningu.
Hversu langa göngutúra þarf hundurinn?
Það fer eftir aldri, heilsu og tegund. Hvolpar þurfa stutta túra og mikinn svefn, fullorðnir lengri hreyfingu. Rólegur þefartúr þar sem hundurinn fær að stoppa og þefa þreytir oft betur en hröð ganga.
Hvað á að taka með í lengri ferðir?
Vatn og ferðaskál, nammi og poka. Ferðavatnsflaskan okkar sameinar flösku og skál í einum hlut og passar í vasann.
Confirm your age
Are you 18 years old or older?
Come back when you're older
Sorry, the content of this store can't be seen by a younger audience. Come back when you're older.