Leikföng

Recently Viewed Products

Algengar Spurningar

Af hverju skipta leikföng máli fyrir hundinn?

Leikur er ekki bara skemmtun. Sameiginlegur leikur styrkir sambandið milli hunds og eiganda og rétt leikföng gefa hundinum útrás fyrir eðlislæga hegðun eins og að toga, elta og naga.

Er í lagi að leika togleik við hundinn?

Já. Rannsóknir styðja ekki gömlu mýtuna um að togleikur geri hunda ráðríka eða árásargjarna. Togleikur er frábær verðlaun í þjálfun og góð leið til að tengjast hundinum.

Hvernig vel ég rétta stærð og gerð?

Veldu leikfang sem hundurinn getur ekki gleypt. Kraftmiklir nagarar þurfa sterkari leikföng eins og KONG Extreme en hvolpar mýkri útgáfur.

Hvað geri ég ef hundurinn hefur lítinn áhuga á leikföngum?

Áhuga á leik má byggja upp. Leikföng með feldi eða hljóði vekja oft veiðieðlið og leikfang verður mest spennandi þegar þú ert með í leiknum í stuttum og líflegum lotum. Geymdu bestu leikföngin fyrir sameiginlegan leik svo þau haldist spennandi.

Til hvers er KONG og hvernig nota ég hann?

KONG er nagþolið leikfang sem má fylla með mat eða nammi. Það gefur hundinum verkefni, hægir á áti og nýtist vel til að kenna hundinum að slaka á einn, til dæmis í búri eða þegar gestir koma.

Geta leikföng komið í stað göngutúra?

Nei, en þau bæta miklu við. Andleg örvun og leikur þreyta hundinn á annan hátt en hreyfing og hvort tveggja skiptir máli. Heilaþrautir og leikföng nýtast sérstaklega vel daga sem veðrið hamlar útiveru.