Nagþolin leikföng sem hundar um allan heim þekkja
KONG
🦷
Fyrir hvern aldur og nagkraft
KONG Puppy úr mildasta gúmmíinu fyrir hvolpatennur, Classic fyrir flesta hunda og Extreme fyrir þá sem naga af mestum krafti.
🧊
Fylltu og frystu
Fylltu KONG með mat, blautmat eða nammi og settu í frysti. Þá tekur lengri tíma að ná í góðgætið og hundurinn hefur verkefni.
🐾
Róar og þreytir
Að sleikja og naga hjálpar hundinum að slaka á. Gott þegar hundurinn þarf að vera einn um stund eða gestir koma.
Af hverju mælum við með KONG?
Hundar þurfa að nota nefið, munninn og hausinn, ekki bara fæturna. Fylltur KONG gefur hundinum verkefni sem þreytir á annan hátt en göngutúr. KONG nýtist líka vel í þjálfun, til dæmis þegar hundur lærir að slaka á í búri eða að vera einn heima.
Andleg örvun
Hægir á áti
Hjálpar hundinum að slaka á
Sterkt náttúrulegt gúmmí