Þurrfóður & Loftþurrkað

Recently Viewed Products

Algengar Spurningar

Hvað er loftþurrkað fóður?

Ferskt kjöt og hráefni þurrkuð með lofti við lágan hita í stað þess að vera elduð. Þurrkunin varðveitir vítamín og næringarefni sem tapast við hefðbundna eldun.

Hver er munurinn á loftþurrkuðu og venjulegu þurrfóðri?

Loftþurrkað fóður eins og Luger's byggir á fersku human grade kjöti, allt að 80% kjöt og innmatur, og er þurrkað í stað þess að vera bakað. Bitarnir eru mjúkir og hægt að rífa þá í sundur, ólíkt venjulegu þurrfóðri sem brotnar. Gott þurrfóður eins og Riverwood og Fish4Dogs er samt frábær kostur, kjarninn er hátt kjöthlutfall og fá og góð hráefni.

Er loftþurrkað valkostur við hráfæði?

Já, það er einmitt hugsunin. Loftþurrkað er það næsta sem þú kemst hráfæði án umstangsins, engin snerting við hrátt kjöt, örugg geymsla og tilbúið beint í skálina.

Hvernig geymi ég þurrfóður rétt?

Lokaðu pokanum vel eftir hverja gjöf og geymdu hann á þurrum og dimmum stað. Pokarnir frá Luger's eru með striga sem einfalt er að loka með, þannig helst pokinn loftþéttur. Fitan í fóðrinu er viðkvæm fyrir lofti og ljósi og ferskt fóður er lystugra fóður.

Hvað af þessu hentar mínum hundi?

Aldur, stærð og virkni ráða mestu og allar uppskriftirnar okkar eru merktar eftir því. Ef þú ert í vafa hjálpum við þér að velja, í búðinni eða á netinu.