Hundaþjálfari í Reykjavík og á netinu

Vantar þig hundaþjálfara?

Hvort sem taumurinn strekkist í hverjum göngutúr, hvolpurinn er nýkominn heim eða ykkur langar einfaldlega lengra saman, þá hjálpa þjálfararnir okkar ykkur að finna réttu leiðina, með jákvæðri styrkingu.

★★★★★4,9 af 5 byggt á 133 umsögnum
Hundaþjálfari á hlaupum í snjónum með tveimur hundum

Hvernig velur þú réttan hundaþjálfara

Það skiptir máli hver heldur á hinum enda taumsins. Þrjú atriði sem vert er að skoða áður en þú velur þjálfara, sama hvort það erum við eða einhver annar.

01

Aðferðirnar skipta öllu

Veldu þjálfara sem notar jákvæða styrkingu. Rannsóknir sýna að harðar refsingar skila engum ávinningi umfram verðlaunaþjálfun og geta gert hegðunarvanda verri. Tal um foringja eða alfa hunda er úrelt og ætti að vera viðvörunarmerki.

02

Spurðu um reynslu og sérsvið

Ólík verkefni kalla á ólíka reynslu. Góður þjálfari segir þér hreint út hvað hann kann best og vísar annað ef verkefnið á betur heima þar.

03

Góður þjálfari þjálfar ykkur bæði

Markmiðið er ekki að þjálfarinn nái árangri með hundinn þinn, heldur að þú getir haldið áfram sjálf eða sjálfur heima. Þú átt að fara af hverjum tíma með verkfæri í höndunum.

Leiðirnar sem við bjóðum

Öll námskeið
Teymið

Sex þjálfarar, hvert með sitt sérsvið

Frá hegðun og hlýðni yfir í sýningarþjálfun og sjúkraþjálfun. Þjálfararnir okkar hafa samanlagt yfir 20 ára reynslu og þú getur kynnt þér hvert og eitt þeirra á teymissíðunni okkar.

20+
ár af samanlagðri reynslu
6
sérfræðingar í teyminu
4,9
af 5 stjörnum í 133 umsögnum
Vilhjálmur hundaþjálfari hjá Hundakúnst ásamt hundinum Pilot
Pakkarnir okkar

Fleiri tímar, betra verð

Þrír tímar veita 10% afslátt, fimm tímar 15% og tíu tímar 20%. Grunnnámskeiðið á netinu fylgir frítt með þriggja og fimm tíma pökkum, svo þið getið æft á milli tíma.

20%
afsláttur þegar þú kaupir tíu tíma pakka
Skoða einkatíma

Hvað segja hundaeigendur

★★★★★4,9 af 5 byggt á 133 umsögnum á hundakunst.is
★★★★★

Ég hef farið á hvolpa og hundanámskeið áður svo ég get sagt með fullvissu að námskeiðin hjá Hundakúnst eru eitthvað annað. Nú hafa augu mín galopnast og ég er orðin svo ástríðufull gagnvart því að kenna og þjálfa hundana mína.

Gestný Rós
★★★★★
100% meðmæli

Mætum núna fólki og hundum í taumgöngu sem við gerðum ekki áður. Hundurinn og eigendur alsælir.

Úr umsögnum um einkatíma
★★★★★
Mæli með fyrir alla

Mæli með þessu námskeiði fyrir alla hunda.

Inga Valgardsdottir

Algengar spurningar um hundaþjálfara

Hvenær þarf ég hundaþjálfara?+

Fyrr en flestir halda. Það er miklu auðveldara að vinna með hegðun áður en hún festist í sessi, svo ef eitthvað í samverunni veldur togstreitu eða óöryggi er rétti tíminn núna. Þú þarft heldur ekki vandamál til að koma, margir nýta einkatíma einfaldlega til að ná lengra með hundinn sinn.

Hvað kostar hundaþjálfari?+

Einn einkatími, 60 til 90 mínútur, kostar 20.000 kr. Þrír tímar kosta 54.000 kr, fimm tímar 76.500 kr og tíu tímar 144.000 kr, og grunnnámskeiðið á netinu fylgir frítt með þriggja og fimm tíma pökkum.

Hvernig vel ég réttan hundaþjálfara?+

Spurðu fyrst um aðferðir. Þjálfun á að byggja á jákvæðri styrkingu, því rannsóknir sýna að refsingar skila engum ávinningi umfram verðlaunaþjálfun og geta gert vandann verri. Spurðu líka um reynslu og sérsvið, og veldu þjálfara sem hlustar á ykkur bæði og kennir þér að halda áfram sjálf eða sjálfur.

Komið þið út á land?+

Já. Við höldum reglulega námskeið á Sauðárkróki, Akureyri og Egilsstöðum, og einkatímar á netinu í gegnum Zoom virka hvar sem þú býrð. Ef þú vilt fá okkur í þína heimabyggð, sendu okkur línu.

Hver er munurinn á einkatímum og námskeiði?+

Í einkatímum fáið þið alla athyglina og unnið er með ykkar verkefni á ykkar hraða. Á námskeiði byggið þið grunninn í litlum hópi á föstum tímum. Margir byrja á námskeiði og bæta einkatímum við þegar þau vilja vinna með eitthvað sérstakt.

Getur hundaþjálfari hjálpað hundi sem er hræddur eða bregst illa við öðrum hundum?+

Já. Einkatímar henta sérstaklega vel fyrir hrædda hunda og hunda sem bregðast illa við áreiti, því unnið er með einn hund í einu, án félagslegs þrýstings og á hraða sem hundurinn ræður við. Við setjum raunhæf markmið með þér frá fyrsta tíma.

Finnum réttu leiðina fyrir ykkur

Fyrsti tíminn er ekki bara spjall. Þið farið heim með æfingar og plan sem virkar strax.

Bóka einkatíma