Nosework 1 - Framhald

35.000 kr

Framhaldsnamskeit i nosework þar við færum þfþjálfunina á naesta stig. Lærðu flóknari leit, nýjar aðstæður og undirbúðu ykkur fyrir nosework-keppni.

Hentar fyrir

  • Þá sem hafa lokið NoseWork 1 grunnnámskeiðinu
  • Hunda sem hafa náð tökum á grunnatriðum nosework
  • Eigendur sem vilja taka nosework á næsta stig
  • Þá sem huga að keppni eða ítarlegri þjálfun í nosework
Nosework 1 - Framhald

Hvað þú og hundurinn þinn lærir

Leit utanhús og farartækjaleit

Áhrif veðurs og vinds á lykt

Lesa og styrkt leitarhegðun

Fínstilla merki hunds

Hvað er innifalið

Framhaldsnámskeið (krefst Nosework 1)

Einn hundur vinnur í einu

Lítill hópur

Er þinn hundur kominn á bragðið? Þá er kominn tími til að kafa dýpra í einu af því skemmtilegasta sem þú gerir með hundinum þínum (því hann ELSKAR að þefa)!

Á þessu framhaldsnámskeiði í Nosework byggjum við ofan á það sem þið lærðuð í grunnnámskeiðinu og færum leikinn á næsta stig. Við æfum bæði utanhús- og farartækjaleit og kynnumst hvernig veður, vindur og hitastig geta haft áhrif á það hvernig lykt berst og hvernig við getum nýtt þá þætti okkur í hag.

Við skoðum leitarhegðun hvers hunds, hvernig hann gefur merki um að hann hafi fundið lyktina og hvernig við getum styrkt og fínstillt þessa hæfni.

Hvort sem þú sérð fyrir þér að keppa í framtíðinni eða ert einfaldlega að leita að góðri leið til að hjálpa hundinum þínum að einbeita sér í krefjandi aðstæðum þá er þetta námskeið fyrir ykkur. Nosework er nefnilega meira en leikur – það er verkfæri til að efla sjálfstraust, styrkja tengsl og skapa rútínu í óreiðu dagsins.

Upplýsingar:

  • Forkröfur: Hundar þurfa að hafa lokið Nosework 1 eða þekkja lykt (Eukalyptus)

  • Farið er yfir:

    • Utanhúsleit

    • Ökutækjaleit

    • Áhrif veðurs, vinds og hitastigs

    • Merkjagjöf hunda og hvernig á að styrkja hana

    • Reglur og aðferðir fyrir keppnir og/eða þjálfun í krefjandi aðstæðum

10% afsláttur af öllum vörum

Þátttakendur á námskeiðum fá 10% afslátt af öllu hundafóðri, vörum og þjálfunarbúnaði. Afslátturinn gildir áfram að námskeiði loknu svo þú getur nálgast allt sem hundurinn þinn þarf á einum stað.

10% afsláttur af öllum vörum

Önnur námskeið

Grunnnámskeið

Grunnnámskeið

Grunnnámskeið fyrir hvolpa og hunda frá 12 vikna aldri þar sem þú lærir að byggja upp traust, skýr samskipti og góðan grunn fyrir lífið saman. Námskeiðið sameinar verklega kennslu, netnám og persónulega leiðsögn í litlum hópi.
5 Vikur
Reykjavík
Helgarnámskeið-Grunnnámskeið

Helgarnámskeið-Grunnnámskeið

Hnitmiðað námskeið fyrir þá sem vilja ná góðum grunni á einni helgi. Við leggjum áherslu á samskipti, traust og hagnýta hlýðni sem virkar í daglegu lífi.
2 Dagar ( 6 klst)
Landsbyggðin (Breytilegt)
Einkatímar fyrir alla eigendur og hunda. Hvort sem um er að ræða vandamál eða að búa til hinn fullkomna vin

Einkatímar

Einkatímar þar sem þú og hundurinn fáið alla athyglina og persónulega leiðsögn. Við hjálpum ykkur að leysa vandamál, þróa æfingar og styrkja sambandið á ykkar eigin forsendum.
1 klst
Reykjavík