Frá hvolpi að stjörnu

49.000 kr

Ítarlegt námskeið fyrir áhugasama eigendur sem vilja þróa hundinn sinn í átt að hlýðnikeppni eða hafa einfaldlega gaman af þess að vinna með besta vini sínum. Byggt á jákvæðum aðferðum og sterkum grundvelli.

Hentar fyrir

  • Áhugasama hundaeigendur sem vilja þróa sig áfram
  • Þau sem hafa grunnnám og vilja undirbúa sig fyrir hlýðnipróf
  • Þá sem huga að keppni í hlýðni
  • Þau sem finnst gaman að vinna ítarlega með hundinn sinn
Frá hvolpi að stjörnu

Hvað þú og hundurinn þinn lærir

Grunnur hlýðni og keppnisæfingar

Aftfótaæfingar

Lyktarpróf, kefli, bendingar o.fl.

Lengri fjarlægðir og lengri hlutlægni

Sérhæfðar keppnisæfingar

Hvað er innifalið

9 klst. verklegt (6 tímar × 1,5 klst.)

Endurgjöf á myndbönd á milli tíma

Persónulegt (hámark 6 nemendur)

Bóklegt efni á netinu

Hvolpanámskeið/hundanámskeið fyrir þá áhugasömu

Þú færð: 

  • 6 verklegir tímar
  • 1,5 klst hver tími
  • Fáir nemendur (6) fyrir persónulega kennslu
  • Bóklegt efni á netinu
  • Endurgjöf á myndbönd á milli tíma

Námskeiðið undirbýr hvolpinn/hundinn  í hæðstu flokka hlýðniprófa, en hvort sem þú vilt keppa eða finnst einfaldlega gaman að vinna með hundinum þá er þetta námskeið fyrir þig. 

Ungir hvolpar geta lært flest grunnatriði sem að verða að flóknum æfingum síðar meir. Grunnæfingar eru eins og stafur á meðan æfingar eru orðið. Ef hvolpurinn eða hundurinn kann stafina þá verður orðið einfalt þegar þar að kemur. Grunnæfingar eru einnig mikilvægur þáttur í því að fá fókusaðan hund sem finnst gaman að æfa með þér.

Allir hundar og hvolpar frá 12 vikna aldri sem hafa verið bólusettir geta komið á námskeið. Við notum jákvæðar þjálfunaraðferðir og umbun og hjálpum þér þannig að búa til sterkt samband og gagnkvæmt traust manns og hunds.

Námið skiptist í bóklegt nám sem fer fram á netinu og verklegt nám. Verklega námið er á tveggja vikna fresti og heimavinna á milli. Í verklegum tímum æfir helmingurinn og helmingurinn hvílir.

Námskeiðið skiptist í verklegt og bóklegt

Verklegt:

Allir verklegir tímar byrja á því að gera þær æfingar sem voru settar fyrir sem heimavinna og svo 2-3 nýjar æfingar sem að verða heimavinna fyrir næsta tíma. Farið verður yfir:

  • Verðlaun og verðlaunamerki búin til
  • Mismunandi target
  • Afturendaæfingar/líkamsvitund
  • Taka upp og sleppa
  • Sækja og koma hratt
  • Hlaupa í kring
  • Hliðarskref
  • Bendingar (hægri, vinstri og fram)
  • Hælstaða
  • Lyktarmismunun

Bóklegt:

Bóklegi hlutinn fer fram á netinu í formi fyrirlestra en einnig verða þessi atriði rædd þegar við hittumst. Bóklegi hlutinn inniheldur meðal annars:

  • Grunnæfingar vs æfingar vs program
  • Verðlaun
  • Verðlaunamerki
  • Mismunandi þjálfunaraðferðir
  • Að plana æfingu

Aukaefni:

  • Hvað er að læra
  • Hvernig læra hundar
  • Félagsmótun og umhverfisþjálfun
  • Tenging manns og hunds

10% afsláttur af öllum vörum

Þátttakendur á námskeiðum fá 10% afslátt af öllu hundafóðri, vörum og þjálfunarbúnaði. Afslátturinn gildir áfram að námskeiði loknu svo þú getur nálgast allt sem hundurinn þinn þarf á einum stað.

10% afsláttur af öllum vörum

Önnur námskeið

Hvolpanámskeið og Grunnnámskeið fyrir hunda á öllum aldri. Lærðu meira á hundinn þinn.

Grunnnámskeið

Grunnnámskeið fyrir hvolpa og hunda frá 12 vikna aldri þar sem þú lærir að byggja upp traust, skýr samskipti og góðan grunn fyrir lífið saman. Námskeiðið sameinar verklega kennslu, netnám og persónulega leiðsögn í litlum hópi.
5 Vikur
Reykjavík
Grunnnámskeið á landsbyggðinni haldið eina helgi. Hundar á öllum aldri velkomnir

Helgarnámskeið-Grunnnámskeið

Hnitmiðað námskeið fyrir þá sem vilja ná góðum grunni á einni helgi. Við leggjum áherslu á samskipti, traust og hagnýta hlýðni sem virkar í daglegu lífi.
2 Dagar ( 6 klst)
Landsbyggðin (Breytilegt)
Einkatímar fyrir alla eigendur og hunda. Hvort sem um er að ræða vandamál eða að búa til hinn fullkomna vin

Einkatímar

Einkatímar þar sem þú og hundurinn fáið alla athyglina og persónulega leiðsögn. Við hjálpum ykkur að leysa vandamál, þróa æfingar og styrkja sambandið á ykkar eigin forsendum.