Helgarnámskeið - Hlýðni
Grunnurinn að hlýðni fyrir keppnishundinn og þá sem vilja meira
Ath. ef að þú vilt fá námskeið til þín endilega hafðu samband og sjáum hvort við náum ekki að safna saman í hóp!
Farið er yfir mikið af grunnæfingum fyrir "advanced" hlýðni á stuttum tíma. Markmiðið er að þátttakendur fái að prófa æfingarnar með hundinum og geti haldið áfram heima. Engar kröfur eru gerðar um fyrri reynslu.
Námskeiðið er fyrir allan hunda frá 12 vikna aldri og fólk sem að vill keppa í hlýðni eða einfaldlega finnst gaman að vinna mikið með hundinum og vill styrkja vinasambandið.
Farið verður meðal annars yfir:
- Verðlaun og verðlaunamerki
- Mismunandi target
- Bendingar (hægri, vinstri, fram)
- Taka upp
- Lyktarmismunum
- Hælstaða og hælganga
- Afturendaæfingar
- o.fl.
Að auki munu þáttakendur fá aðgang að bóklegu efni þar sem farið er meðal annars í verðlaun og verðlaunamerki, mismunandi þjálfunaraðferðir, að plana æfingar, hvað er að læra o.fl. ganglegar upplýsingar
Almennt
Hundakúnst áskilur sér rétt til að hætta við námskeið, pantanir eða hverskonar sölu, vegna t.d. rangra verðupplýsinga, ónægrar þáttöku á námskeiðum eða annara ástæðna. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
5 dögum eftir að krafa kemur í heimabanka og/eða eftir eindaga fer hún sjálfkrafa í innheimtu hjá Inkasso hafi viðskiptavinur ekki haft samband og samið um annað.
Vöruverð og sendingarkostnaður
Öll verð í vefverslun eru endanleg verð nema annað sé sérstaklega tekið fram, og innihalda þar af leiðandi 24% vsk þar sem við á og önnur vörugjöld.
Afskráning
Láti viðskiptavinur vita með þriggja vikna fyrirvara (námskeið) eða 24 klst fyrirvara (einkatími) að viðkomandi vill hætta við er veitt full endurgreiðsla. Skrái viðskiptavinur sig á námskeið með skemmri fyrirvara er ekki veitt endurgreiðsla.
Undantekningar á þessari reglu koma fram á kynningarsíðu námskeiðsins, t.d. ef að um sérnámskeið er að ræða.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum seldar til þriðja aðila.
Um allar persónuupplýsingar verður farið samkvæmt lögum nr. 90/2018 um persónuvernd.
Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur.