Helgarnámskeið - Spor
44.900 kr
Tveggja daga námskeið þar þú og hundurinn lærir grunnatriði spors – náttúrulegar og gefandi íþrótt þar hundurinn notar nefíð. Hentar byrjendum sem vilja koma af stað á skemmtilegan hátt.
Hentar fyrir
Hvað þú og hundurinn þinn lærir
Hvað er innifalið
Spor til skemmtunar fyrir byrjendur – vinnum með genin!
Námskeiðið er sirka 5 klst. hvorn dag, samtals 10 klst.
Spor er ein af mest gefandi og náttúrulegu leiðum fyrir hunda til að vinna með nefið. Þetta námskeið er fullkomin byrjun fyrir alla hundaeigendur sem vilja gefa hundinum sínum áskorun og verkefni, en fátt þreytir hunda jafn mikið og að þefa! 🐾
Á þessu námskeiði kennum við að fylgja slóð sem manneskja hefur gengið. Hundurinn fær að njóta sín að nota nefið og þú færð að kynnast ótrúlegu lyktarskyni þíns besta vinar.
Kennslan fer fram í litlum hóp og aðeins einn hundur er að vinna í einu sem þýðir að þetta námskeið hentar einnig stressuðum, óöruggum og ofurspenntum hundum. Hver hundur fær tækifæri til að vinna í friði með eiganda sínum á eigin hraða.
Fyrir hverja?
Allar hundategundir og stærðir velkomnar – engin þekking í spori nauðsynleg.
Helstu upplýsingar:
-
🐶 Fyrir byrjendur – engin reynsla nauðsynleg
-
👥 Hópnámskeið – en einn hundur í einu í vinnu
-
💛 Hentar líka vel fyrir óörugga eða stressaða hunda
-
👃 Við vinnum með genin – öllum hundum finnst gaman að þefa
10% afsláttur af öllum vörum
Þátttakendur á námskeiðum fá 10% afslátt af öllu hundafóðri, vörum og þjálfunarbúnaði. Afslátturinn gildir áfram að námskeiði loknu svo þú getur nálgast allt sem hundurinn þinn þarf á einum stað.
Þjálfunin í myndum
Önnur námskeið


