Hundar í starfi með fólki
53.000 kr
Fagleg fræðsla fyrir þá sem vilja nota hunda í starfi með börnum, ungmennum eða fullorjðnum. Námskeiðið veitir þér þekking og verkfæri til að vinna með hund á öruggan og áhrifarjíkan hátt.
Hentar fyrir
Hvað þú og hundurinn þinn lærir
Hvað er innifalið
Fyrir alla sem hafa áhuga á þjálfun hunda og starfi með fólki.
Hundar í starfi með fólki
Viltu styðjast við hund í starfi með börnum, ungmennum eða fullorðnum á öruggan, faglegan og ábyrgan hátt? Þetta námskeið er ætlað þeim sem sjá fyrir sér hlutverk þar sem hundur og manneskja vinna saman, hvort heldur sem er í kennslu og meðferðarvinnu eða einfaldlega leik og þjálfun.
Eins og alltaf hjá Hundakúnst er lögð mikil áhersla á velferð hunda en í vinnu með hundum og fólki er þetta einstaklega mikilvægt og því er farið nánar út í mikilvægi þess að skapa öruggar aðstæður fyrir bæði hunda og fólk. Í því felst að lesa í líðan og streituviðbrögð hunda og bregðast við á viðeigandi hátt, byggja upp traust, samvinnu og skýr samskipti og mikilvægi hvíldar og að mörk séu virt.
Farið verður yfir gagnlegar grunnæfingar í starfi en ekki síður í daglegum samskiptum og leik með okkar besta vini.
Dæmi um æfingar:
- Koma inn í byggingu
- Liggja á mottu
- Heilsa og dvelja hjá ókunnugri manneskju
- Taka upp hluti og afhenda í körfu eða hendi
- Fella keilur, hoppa gegnum húllahringi
- Hundakúnstir (dansa, vefa, heilsa o.fl.)
Að námskeiði loknu ættu þátttakendur að hafa meiri innsýn í hverju slík þjálfun felst, öðlast verkfæri til að styðja hund í krefjandi aðstæðum og aukna færni við að skipuleggja og þjálfa hundinn sinn.
Kennari er Gunnhildur Jakobsdóttir, BS í iðjuþjálfun, MS í heilbrigðisvísindum og viðurkenndur PADA (personality assessment for dogs in Animal Assisted Interventions) dómari og kennari ásamt því að hafa lokið hundaþjálfaranámi. Sjá meira hér
10% afsláttur af öllum vörum
Þátttakendur á námskeiðum fá 10% afslátt af öllu hundafóðri, vörum og þjálfunarbúnaði. Afslátturinn gildir áfram að námskeiði loknu svo þú getur nálgast allt sem hundurinn þinn þarf á einum stað.
Önnur námskeið

Grunnnámskeið

Helgarnámskeið-Grunnnámskeið
