Sýninganámskeið
24.990 kr
Námskeið fyrir þá sem vilja hefja sýningarferil eða þróa sig í hundasýningum. Farið er yfir uppstillingu, sýningarstöðu og húmorlagæðarútrínur sem gjöra ykkur tilbúin fyrir sýningargólfið.
Hentar fyrir
Hvað þú og hundurinn þinn lærir
Hvað er innifalið
Ertu að byrja að sýna eða ert forvitin/forvitinn um sýningarheiminn?
Hvort sem þú ert að velta því fyrir þér hvernig sýningar virka eða ert að undirbúa þig og hundinn þinn fyrir þína fyrstu sýningu, þá er þetta námskeiðið sem hjálpar þér að komast af stað með sjálfstraust og gleði.
Námskeiðið hentar bæði hvolpum og fullorðnum hundum – því aldrei er of snemmt (eða of seint!) að læra að skína í hringnum.
Kennarinn á námskeiðinu er Stefanía Björgvinsdóttir en hún hefur sýnt og þjálfað sýningahunda í um 25 ár með mjög góðum árangri.
Við vinnum í smáum hópi, aðeins 6 hundum í senn, sem tryggir persónulega leiðsögn og rólegt andrúmsloft þar sem hver hundur og eigandi fá tíma og rými til að vaxa saman sem teymi.
Á námskeiðinu lærir þú meðal annars:
- Hvernig sýningar fara fram og hvert markmið þeirra er
- Grunnaðgerðir og sýningarrútínur
- Rétta uppstillingu og sýningarstöðu
- Hvernig dómari skoðar hundinn
- Líkamsbeitingu og tjáningu sýnanda
- Hlaupa - og göngustíl í hringnum
- Allt það helsta sem við kemur sýningum
10% afsláttur af öllum vörum
Þátttakendur á námskeiðum fá 10% afslátt af öllu hundafóðri, vörum og þjálfunarbúnaði. Afslátturinn gildir áfram að námskeiði loknu svo þú getur nálgast allt sem hundurinn þinn þarf á einum stað.
Önnur námskeið

Grunnnámskeið

Helgarnámskeið-Grunnnámskeið
